Hvað ef Hitler hefði unnið?
Xavier March er rannsóknarlögreglumaður Þriðja Ríkisins, í Þýskalandi sem sigraði seinni heimsstyrjöldina. March er fenginn til að rannsaka morð í Berlín, á háttsettum manni innan nasistaflokksins. En málið endar ekki þegar glæpurinn er leystur. March kemst að djúpu samsæri sem nær alla leið upp á topp og stofnar lífi hans í hættu. Með Gestapo á hælunum vinnur hann með bandarískri blaðakonu til að uppræta spillinguna. Saman leggja þau allt í sölurnar til að komast að sannleikanum.
Sannleik sem breytir gangi sögunnar.
Bókin var gerð að sjónvarpsmynd undir upprunalega titlinum, Fatherland, árið 1994.
Robert Harris (f. 1957) er breskur rithöfundur og blaðamaður. Skáldsagnaferill hans hófst með bókinni Föðurland, sem skaut honum upp á stjörnuhimininn og síðan hefur hann skrifað fjölda skáldsagna, ekki síst Enigma, sem gerð var kvikmynd eftir árið 2001. Harris býr í Bretlandi með konu sinni, rithöfundnum Gill Hornby, og eiga þau saman fjögur börn. Hann er hvergi nærri hættur að skrifa.
Publication
2026
Pages
185
Format
Epub
Publisher
Saga Egmont
Excerpt
Translator
Guðbrandur Gíslason
There are no reviews for this book yet.