Heiður í húfi

J
Jeffrey Archer

Þetta byrjar allt með sakleysislegu bréfi. En bréfið sem faðir Adams Scott ánafnar syni sínum er allt annað en sakleysislegt. Það inniheldur upplýsingar sem gætu breytt valdajafnvægi stærstu þjóða heims og áður en hann veit af er Adam kominn á flótta, ekki aðeins frá CIA og KGB, heldur einnig samlöndum sínum. Markmið þeirra er einfalt: Að drepa hann áður en sannleikurinn kemur í ljós. Meira að segja þeir sem Adam eru næstir koma til með að svíkja hann og hann áttar sig á að málið snýst um annað og meira en bara líf og dauða; hér er heiður í húfi. Jeffrey Howard Archer (f. 1940) er breskur aðalsmaður sem var meðlimur breska þingsins, en neyddist til að segja af sér í kjölfar hneykslismáls. Nær gjaldþroti tókst honum að vinna sér inn frægð með því að skrifa pólitískar spennusögur. Í dag hafa bækur hans selst í fleiri en 320 milljón eintökum um allan heim, þrátt fyrir að mál hans hafi verið tekið upp aftur og hann setið í fangelsi í nokkur ár. Hann hefur skrifað alls 42 verk, sem hafa verið þýdd á 33 tungumál.

Publication

2022

Pages

388

Format

Epub

Publisher

Saga Egmont

Excerpt

EPUB

Translator

Björn Jónsson

Reviews (0)

There are no reviews for this book yet.

0 reading 0 read 0 want to read 0 dropped 0 favorites